Guðmundur Bjarnason Steinaslípari

Guðmundur með blágríti úr Holuhrauni

Guðmundur Bjarnason steinaslípari á Akureyri er flestum gullsmiðum kunnur. Þegar hann lét af störfum, eftir að hafa verið verkstjóri í Slippnum á Akureyri  til margra ára, helgaði hann sig steinaslípun. Kom sér upp fullkomnari tækjum en áður höfðu sést hér á landi.

Guðmundur sagar sundur bergkristal

Hluti vinnustofunnar

Bergkristallinn formaður

Slípivél sem Guðmundur smíðaði

Sög sem Guðmundur smíðaði


Hluti mikils steinasafns Guðmundar

Guðmundi er margt til lista lagt. Smíðisgripir eftir hann; krossar og forláta fiðrildi skreytt dýrum steinum.

Bergkristall úr Vaðlaheiði. Hann fannst í landi Hallanda þegar sprengt var fyrir vegstæði um 7- 800m frá gangnamunna Vaðlaheiðarganga.

Stínu eiginkonu Guðmundar fellur sjaldan verk úr hendi þótt aðeins vanti eitt og hálft ár í nírætt.  Hún er mikil hagleiks kona og prýða margar veggmyndir hennar heimilið.

 

Fallegar útsaumsmyndir húsfreyjunnar.

 

Stína, Kristín Hrund Kjartansdóttir frá Miðhvammi í Aðaldal, er fædd 2.12.1927 en Guðmundur er fæddur á Bíldudal 17.2.1930.  Hann flyst með foreldrum sínum til Akureyrar er faðir hans Bjarni Þorbergsson trésmiður fær þar vinnu 1934.  Uppúr 1970 byrjar Guðmundur að safna steinum og koma sér upp vélum sem hann ýmist smíðar sjálfur eða flytur inn frá Bandaríkjunum. Ein vélanna sem hann flytur inn, kringum 1978, er fullkomin fasettuslípivél sú eina sinnar tegundar sem verið hefur í notkun hér á landi.

 

Bergkristallinn sem Guðmundur sést slípa á myndunum að ofan kominn á sinn stað á kaffikönnuloki.

 

 

-Netnefnd þakkar þeim Stínu og Guðmundi kærlega góðar móttökur og hlakkar til að kíkja fljótlega í heimsókn aftur.

Posted in Heimsóknir.