GÞ í Bankastræti

Netnefndin var á ferð í gamla miðbænum og leit inn hjá Ólafi G. Jósefssyni í Bankastræti.  Hann, ásamt konu sinni og börnum reka verslunina Guðmundur Þorsteinsson eða GÞ skartgripir og úr.  Verslunin á sér langa sögu og merka er nær aftur til ársins 1925.

Í kynningarefni verslunarinnar má lesa eftirfarandi: “GÞ skartgripir og úrá sér langa sögu eða allt til ársins 1925 þegar Guðmundur Þorsteinsson þá 27 ára að aldri ákvað að stofna verslun hér í kaupstaðnum að Bankastræti 12 og hefur hún verið starfrækt þar síðan og er trúlega elsta verslun sem starfrækt hefur verið í sama húsi frá upphafi hér á landi”.

Árið 1978 býðst Ólafi G. Jósefssyni að kaupa verslunina af stofnendum hennar þeim Guðmundi Þorsteinssyni og Ólafíu G. E. Jónsdóttur sem höfðu rekið verslunina af alúð allt frá stofnun hennar 1925.

Ólafur G. Jósefsson gullsmiður kaupir verslunina ásamt viðskiptafélaga sýnum Axel Eiríkssyni úrsmið en þeir höfðu rekið saman verslunina Sigurverka og skartgripasalan. Síðar kaupir Ólafur, Axel út úr fyrirtækinu og hefur rekið það síðan ásamt konu sinni og börnum”.

“GÞ skartgripir og úrer alhliða úra og skartgripaverslun  þar sem við kappkostum að allir finni eitthvað við sitt hæfi og bjóðum þess vegna upp á mjög fjölbreytt vöruúrval. Við viljum að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og reynum eftir bestu getu að sýna góða þjónustu og þjónustulund”.

Vöruúrvalið er með því besta sem gerist og mikill fjöldi ferðamanna sem á leið um Bankastræti þarf því ekki að leita víðar ekki frekar en íslenskir viðskiptavinir.  Auk úrvals skartgripa, úra og gjafavöru  eru viðgerðir og nýsmíði stór þáttur í starfseminni ásamt þjónustu er tengist búningasilfri.  Verslunin hreykir sér af því að ávallt sé fagmaður á staðnum.

Netnefnd þakkar Ólafi og hans fólki góðar móttökur.

-AR

Posted in Heimsóknir.