Ingi Kristmanns, I-Silver
Ingi Kristmanns lauk sveinsprófi 1989. Hann starfaði hjá Gull-og silfursmiðjunni Ernu frá 1966- 1985. Um nokkurt skeið starfaði hann einnig í Danmörku. Í dag rekur hann fyrirtæki sitt I-Silver og sérhæfir sig í framleiðslu á afsteypum frá Þjóðminjasafni Íslands.
Silfurnæla frá miðri 11. öld fundin í Tröllaskógi á Rangárvöllum.
Kross, oft nefndur Þórshamar, frá um 1000. Fundinn hjá Fossi í Hrunamannahreppi.
Einnig framleiðir Ingi smáar eftirmyndir af þekktum húsum sem eru mjög vinsæl hjá ferðamönnum.
Hægt er að sjá meira úrval af vörum hans á fésbók.
Ingi kveikir saman armband.
Á fésbók má einnig líta úrval af vörum frá Inga á þessari ensku síðu: Historical Icelandic Jewelry.
I-Silver, Ingi Kristmanns, Hörðukór 1. Sími 688 8390/ 898 8390
-AR