Jón Halldór Bjarnason lærði gullsmíði hjá föður sínum Bjarna Þorgeiri Bjarnasyni. Bjarni og Þórarinn Gunnarsson gullsmiður ráku saman fyrirtæki sem nefnt var eftir þeim Gullsmíðaverkstæði Bjarna og Þórarins.
Þeir hófu starfsemi 1954 fyrst við Bergstaðastræti síðar við Laugaveg. 1968 festa þeir kaup á húsnæði Wilhelms Norfjörð við Hverfisgötu 49.
Þar starfar Jón Halldór til 1980. Það ár flytur hann til Hafnar í Hornafirði þar sem hann rak gullsmíðaverkstæði ásamt úra- og skartgripasölu meðfram því að stunda sjóinn enda stutt á gjöful mið.
Árið 2000 kaupir Jón Halldór fyrirtækið eftir að félagarnir sem oft voru kallaðir Tóti og Bjarni voru báðir látnir, Bjarni 1995 og Þórarinn 1999.
2007 kaupir Nonni gull sögufrægt fyrirtæki við Strandgötu 37 í Hafnarfirði sem þá nefndist Gunni Magg. Gunni Magg er sonur Magnúsar Guðlaugssonar úrsmiðs sem keypt hafði fyrirtækið af Má úrsmið sem var sonur Einars úrara sem byggði húsið 1925. Sama starfsemi hefur því verið í húsinu til þessa dags.
Nonni gull er þekktur fyrir smíði á töfrarúnum og galdrastöfum sem margar verslanir selja. Einnig smíðar hann búningasilfur, trúlofunarhringa og sinnir sérsmíði hvers konar.
Alhliða viðgerðaþjónusta, leturgröftur, rafhlöðuskipti, gylling og göt í eyru er hluti af þjónustunni sem í boði er. Einnig má geta þess að Nonni framleiðir muni fyrir aðra gullsmiði og ýmis fyrirtæki enda klyfjaður reynslu.
Þegar netnefnd kvaddi nefndi Nonni að hann hyggðist jafnvel selja fyrirtækið. Er því hér með komið á framfæri ef einhver gull- eða úrsmiður er á höttunum eftir ráðsettu fyrirtæki. Ekki spillir að i 100 ár og 8 skemur hafa viðskiptavinir sótt alla þjónustu sem tengist skarti og úrum í Strandgötu 37.
Netnefnd þakkar Nonna gull fyrir góðar móttökur og óskar honum góðs gengis.
AR