Leifur Jónsson gullsmíðameistari

Leifur Jónsson gullsmíðameistari leit inn á eina af starfstöðvum Netnefndar.  Hann hefur í áratugi sett svip á bæinn með starfsemi sinni.  Skemmst er að minnast Gullhallarinnar, einar helstu gullverslunar bæjarins í áratugi, stofnuð 1976.

Árið 2001 söðlaði Leifur um, seldi verslunina og stofnaði heildverslunina Skartís.  Fyrirtækið var um nokkurt árabil við Ármúla en í dag er Leifur með aðstöðu sína á Laugavegi 13 í húsnæði Gullkúnstar Helgu.  Á boðstólum er mikið úrval af skartgripum, öskjum og íhlutum fyrir skartgripasmíði s.s. keðjur, lásar og þ.h.

Íslensk hönnun eftir Leif hefur verið vinsæl og selst í verslunum um allt land.  Það eru bæði stakir skartgripir og skartgripasett sem hafa hitt vel í mark.

Þjónustan er einhver sú besta sem til er því óski menn, á höfuðborgarsvæðinu, þess þá afgreiðir Leifur pantanir smáar sem stórar alla leið að dyrum viðskiptavina.  Þiggur gjarnan kaffi en ekki með því.


Hægt er að ná í Leif í síma 618 6604 og póstfangið er skartis@mmedia.is

AR

Posted in Heimsóknir.